Ég er bara ekki sú týpa sem að skrifar inn reglulega, en ef að ég geri það einstöku sinnum, þá er það betra en ekkert.
Ég hugsa að flestir þeir sem að lesi þetta blogg viti svona nokkurn veginn hvað er í gangi hjá mér, en ef að það eru einhverjir sem að detta hér inn og vita ekkert, þá er um að gera að halda þessu við.
Í augnablikinu er ég að leyta mér að nýrri vinnu þar sem að það var kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Fasteignamarkaðurinn er algjörlega í skít hér og þið sem að lesið blöðin, þá er þetta miklu verra en það sem að þeir segja. Þeir vilja bara ekki hræða fólk algjörlega svo að hlutabréfin í bönkunum falla ekki meira en þau hafa gert, og fleiri bankar verði skotnir niður.
Þannig að, tími kominn til breytingar.
Lífið gengur annars sinn vanagang hér úti. Erum að leyta að skóla handa Lilu sem að ætlar að fara í lögfræðina og erum komin með nokkra í sigtið.
Ég er á fullu að fylgjast með enska boltanum, en Arsenal og Reading eru að spila í augnablikinu og ég er með Fabregas og Adebayor í Fantasy liðinu mínu þó að ég þoli ekki Arsenal.
En heyrið, má ekki skrifa of mikið í einu. Get ekki brugðið algjörlega út af vananum.
Heyrums síðar og áfram Manchester United.
Einsi Kaldi